Stjórn TM

Stjórnarmenn og forstjóri TM þurfa að fullnægja þeim skilyrðum sem kveðið er á um í lögum nr. 2/1995, um hlutafélög, og lögum nr. 56/2010, um vátryggingarstarfsemi, auk þess sem forstjóri og stjórnarmenn TM þurfa að standast hæfnismat Fjármálaeftirlitsins sem fer fram í samræmi við reglur Fjármálaeftirlitsins nr. 886/2012, um framkvæmd hæfnismats framkvæmdastjóra og stjórnarmanna vátryggingarfélaga.


Örvar Kærnested

stjórnarformaður

Örvar tók fyrst sæti í stjórn TM í desember 2012. Hann er fæddur árið 1976 og er sjálfstætt starfandi fjárfestir. Örvar er með B.Sc.-gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands og próf í verðbréfaviðskiptum. Örvar starfaði á árunum 1999–2008 hjá Kaupþingi banka og síðar Stodir UK ltd. Örvar er eigandi Riverside Capital ehf. Sem á 2% eignarhlut í TM. Engin hagsmunatengsl eru við stærstu viðskiptaaðila eða samkeppnisaðila.

Bjarki Már Baxter

varaformaður

Bjarki Már tók fyrst sæti í stjórn TM í desember 2012. Hann starfar sem héraðsdómslögmaður hjá Hildu ehf. Á árunum 2009–2011 starfaði hann hjá KVASIR lögmönnum og 2011–2013 var hann yfirlögfræðingur slitastjórna Frjálsa hf. og SPRON hf., hjá Dróma hf. Bjarki útskrifaðist með mag. jur.-gráðu í lögfræði frá Háskóla Íslands árið 2007. Hlutafjáreign í félaginu er engin. Engin hagsmunatengsl eru við stærstu viðskiptaaðila eða samkeppnisaðila. Bjarki Már er fæddur árið 1982.

Andri Þór Guðmundsson

stjórnarmaður

Andri var skipaður í stjórn TM í ágúst 2013. Hann hefur verið forstjóri Ölgerðarinnar Egils Skallagrímssonar ehf., frá árinu 2004. Andri er með cand. oecon.-gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands og lauk árið 2002 MBA-prófi frá Rotterdam School of Management. Andri situr í stjórn Mjallar-Friggjar ehf., Sólar ehf., Samtaka iðnaðarins og Viðskiptaráðs. Hann er einnig í stjórn OA eignarhaldsfélags ehf., Ofanleiti 1 ehf og Verzlunarskóla Íslands ses. Hlutafjáreign í félaginu er engin. Engin hagsmunatengsl eru við stærstu viðskiptaaðila eða samkeppnisaðila. Andri er fæddur árið 1966.

Bryndís Hrafnkelsdóttir

stjórnarmaður

Bryndís er fædd árið 1964 og hefur frá árinu 2010 verið forstjóri Happdrættis Háskóla Íslands. Hún útskrifaðist með cand. oceon.-gráðu í viðskiptafræði árið 1989. Hún tók sæti í varastjórn TM í mars 2011. Bryndís var á árunum 2000–2006 framkvæmdastjóri Debenhams á Íslandi, starfaði á fjármálasviði samstæðu Kaupþings banka hf. 2007–2008 og var fjármálastjóri Landfesta hf. á árunum 2008–2010. Hún er formaður skólanefndar Verzlunarskóla Íslands og stjórnarformaður í Ofanleiti 1 ehf. Bryndís situr einnig í stjórn Regins hf. Hlutafjáreign í TM er engin og engin hagsmunatengsl eru við stóra hluthafa, stærstu viðskiptaaðila eða samkeppnisaðila.

Kristín Friðgeirsdóttir

stjórnarmaður

Kristín var skipuð í stjórn TM í ágúst 2013. Hún kennir við London Business School og stundar rannsóknir og ráðgjöf á sviði ákvarðanatöku, áhættustýringar, verðlagningar og tekjustýringar. Kristín hefur starfað sem ráðgjafi hjá McKinsey, Intel, Yahoo og öðrum vef- og fjármálafyrirtækjum. Hún kennir stjórnendum erlendra fyrirtækja ákvarðanatöku, s.s. Lloyds, Prudential, Lufthansa, Oman Oil og Mars. Kristín útskrifaðist með B.S.-gráðu í véla- og iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands árið 1995, M.S.-gráðu í fjármálaverkfræði frá Stanford-háskóla árið 1997 og lauk árið 2002 Ph.D. í rekstrarverkfræði frá Standford háskóla. Kristín situr í háskólaráði Háskólans í Reykjavík, er stjórnarformaður Haga hf. og situr í stjórn Distica hf. Kristín er fædd árið 1971. Hlutafjáreign í TM er engin og engin hagsmuna­tengsl eru við stærstu viðskipta- eða samkeppnisaðila. 



Varamenn

Daði Bjarnason

varamaður

Daði er fæddur árið 1974 og er eigandi Lagahvols slf. og starfar þar sem héraðsdómslögmaður.  Hann útskrifaðist með cand. jur.-gráðu í lögfræði frá Háskóla Íslands árið 1999 og lauk árið 2006 LL.M.-prófi frá King's College í London. Daði var á árunum 2006–2011 forstöðumaður lögfræðisviðs Sparisjóðabanka Íslands. Hann situr í stjórn TC ehf. (eiganda Hverfisgallerís) og tók sæti í varastjórn TM í ágúst 2013. Hlutafjáreign í TM er engin og engin hagsmunatengsl eru við stóra hluthafa, stærstu viðskiptaaðila eða samkeppnisaðila.

Helga Kristín Auðunsdóttir

varamaður

Helga Kristín er fædd árið 1980 og starfar sem sviðsstjóri lögfræðisviðs Háskólans á Bifröst. Hún útskrifaðist með BS-gráðu í viðskiptalögfræði frá Bifröst árið 2004 og með meistaragráðu frá sama skóla árið 2006. Helga lauk árið 2010 LL.M.-prófi frá Miami-háskóla. Hún starfaði sem lögfræðingur hjá Stoðum hf. 2008–2009 og hefur verið gestakennari við lagadeild Miami-háskóla. Helga var kosin í varastjórn TM í mars 2012. Hlutafjáreign í TM er engin og engin hagsmunatengsl eru við stóra hluthafa, stærstu viðskiptaaðila eða samkeppnisaðila.

Þórunn Pálsdóttir

varamaður

Þórunn er fædd árið 1965 og starfar sem sölufulltrúi á Valhöll Fasteignasölu. Hún útskrifaðist sem verkfræðingur frá Háskóla Íslands árið 1989 og með MBA-gráðu frá San Francisco-háskóla árið 1991. Hún lauk prófi í verðbréfaviðskiptum árið 2007. Þórunn var á árunum 2006–2011 viðskiptastjóri í einkabankaþjónustu Íslandsbanka hf. og sérfræðingur hjá lánaeftirliti sama banka 2011–2012. Hún var fyrst kosin í varastjórn TM í desember 2012. Þórunn situr í stjórn Framtakssjóðs Íslands slhf. og í stjórn Íþrótta- og sýningarhallarinnar hf. Hlutafjáreign í TM er engin og engin hagsmunatengsl eru við stóra hluthafa, stærstu viðskiptaaðila eða samkeppnisaðila.

Helgi Eysteinsson

varamaður

Helgi er fæddur árið 1976. Hann er með B.Sc.-gráðu í viðskiptafræði og próf í verðbréfaviðskiptum. Helgi hefur verið sjálfstæður ráðgjafi frá 2013, framkvæmdastjóri Feria (VITA) 2011–2103, framkvæmdastjóri Iceland Travel 2008–2011, starfaði hjá markaðsviðskiptum Glitnis 1999–2002 og 2006–2008, sölu- og markaðstjóri Ferðaskrifstofu Íslands 2004–2006 og markaðsráðgjafi hjá Íslensku auglýsingastofunni 1999–2002. Helgi hefur ekki áður verið kosinn í stjórn TM. Hlutafjáreign í TM er engin og engin hagsmunatengsl eru við stóra hluthafa, stærstu viðskiptaaðila eða samkeppnisaðila.